HInn 16 ára gamli Hjálmar Þórarinsson var besti maður vallarins í leik Þróttar gegn sameiginlegu liði Leifturs og Dalvíkur á dögunum. Hjálmar skoraði eina mark Þróttar og fiskaði einnig vítaspyrnu sem Þróttarar misnotuðu.
Íslandsmeistarar KR-inga í knattspyrnu ákváðu í gær að leysa Frakkann Moussa Dagnogo undan samningi við félagið. Dagnogo gekk í raðir KR-inga fyrir tímabilið og eins og margir leikmenn liðsins hefur hann ekki staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.
Ólafur Þórðarson, þjálfari og leikmaður ÍA, mun ekki leika meira með liðinu í sumar. Óli hefur átt við nárameiðsli að stríða undanfarnar vikur og nú hefur komið í ljós að vöðvafesting hefur rifnað.Óli segir að hann sé ekki búinn að ákveða hvort hann ætli að láta staðar numið í boltanum vegna þessa.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..