Símadeildin Ólafur Þórðarson, þjálfari og leikmaður ÍA, mun ekki leika meira með liðinu í sumar. Óli hefur átt við nárameiðsli að stríða undanfarnar vikur og nú hefur komið í ljós að vöðvafesting hefur rifnað.Óli segir að hann sé ekki búinn að ákveða hvort hann ætli að láta staðar numið í boltanum vegna þessa.