Símadeildin Íslandsmeistarar KR-inga í knattspyrnu ákváðu í gær að leysa Frakkann Moussa Dagnogo undan samningi við félagið. Dagnogo gekk í raðir KR-inga fyrir tímabilið og eins og margir leikmenn liðsins hefur hann ekki staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.