Þessi Labrador bjó í næsta húsi við mig. Einstaklega vel heppnað eintak af Labrador, skapgóður og yndislegur í alla staði. Á ferli sínum sem veiðihundur hefur hann sótt nokkur hundruð fugla á landi og vatni, en er nú kominn á eftirlaun.
Hann Holyfield er ekki beint geislandi af hamingju með Halti múlinn á sér. Hann setur vanalega upp þennan rosalega bælda svip og gefur frá sér þvílík andvörp og læti ef að hann á að vera með múlinn úti í gönguferðum, en hann reynir ekki að ná honum af sér nema að hann þurfi að sitja kyrr með hann í einhvern tíma.
Þetta er hun Ronya 17 mánaða í gær .það skemtilegasta sem hun gerir er að hitta aðra hunda sem nenna að leika við hana :)Hún er með yndilegt skap og er mjög geðgóð og hliðin
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..