Þetta er Orange Rocker 30 Class A Lampamagnari. Ég keypti hann í Desember. Svo var ég að kaupa boxið núna á Laugardaginn síðasta, og djöfull soundar þetta geggjað!! Það er svolítið hart sound í þessu, og ég gjörsamlega elska það!!
Hérna er nýjasti gripurinn. Þetta myndi vera Fender Stratocaster Plus árgerð 1987. Litur heitir “Surf Green”. Það eru Gold Lace Sensor pickupar í öllum stöðum, TBX tone control, Hipshot Tremsetter, Wilkinson Roller Nut, Sperzel læstir tunerar og Schaller straplock. Fyrir þá sem langar að vita meira um þessa gítara geta skoðað http://www.xhefriguitars.com/page2.html.
þetta munu vera tveir drauma bassarnir mínir!