Ágætu cs-arar!

Í nótt gerðust þau fáheyrðu tíðindi að tveir af sökudólgunum í ICSN hneykslinu, þeir blibb og Zombie, fyrirgáfu NeF ásamt Snoz, og gengu til liðs við Murk sem tók þeim félögum fagnandi. Ekki er nú vélabragðaþröskuldurinn hár á þeim bænum. BenDover virðist því fórnarlamb en ekki gerandi!

Að auki liggja fyrir heimildir þess efnis að MrRed og Shroom hafi langt í frá yfirgefið Murk og reyndar spilað undir þeim merkjum, þannig að þeir sem lásu afsökunarbeðni MrRed á sínum tíma með tárin í augunum og sögðu “word up” ættu hugsanlega að endurskoða afstöðu sína.

Annars má lesa allt um þetta mál á fréttasíðu GGRN - ggrn.org. Af gefnu tilefni langar mig til þess að benda þeim sem þykjast leiðir á þessari umræðu að lesa bara eitthvað annað í stað þess að draga þetta á langinn með idjótískum athugasemdum um að þeir séu orðnir leiðir á þessu. Það er einhver mótsögn í því.

Kveðja,
<br><br><a href="http://www.ggrn.org">[GGRN]</a>Rooste