Hópferðin á vegum sólarklúbbsins verður farin á morgun, föstudag. Nokkrir vaskir einstaklingar innan CS samfélagsins ætla sjá sér leik á borði og mun ferðast til Akureyrar á morgun. Tilefnið er hátíð sólarinnar eða réttara sagt: Sólin 2001.
Mun þessi ferð verða skráð bæði á myndrænu formi sem og á tape. Þetta er fyrsta ferð Sólarmanna, en ef þessu verður vel tekið munu félagsmenn láta eitthvað að sér kveða innan skamms. Auðvitað mun SÓLIN gæða við félagsmenn enda er SÓLARspáin góð, þeas. 12-18 stiga hiti á Norðurlandi um helgina.

Feiti Dreitill - 12 mín my ass
Dreitill Dropason esq.