Ég get ímyndað mér hinar og þessar ástæður fyrir því að custom made logo virka ekki hjá íslenskum netþjónum. En væri einhver til með að segja mér það hvaða lappir maður þarf að nudda til að fá að frussa litlu sætu aulalogo-i svona rétt áður en maður er skotinn í spað af mis vinsamlegum mótherjum. Varðandi IP tölur, þá þætti mér líka vænt um að fá að vita hvað maður þarf að hafa til brunns að bera ef maður vill vernda taggið sitt. Svo ein ábending til þeirra sem að stjórna íslenskum netþjónum að láta það ekki svo glatt uppi að þeir viti hvar maður er til húsa að spila - semsagt maður á ekki að stela ef maður kann ekki að fela.
[Cadia]Promazin
“Hópur spilara sem að eiga sér ekkert líf”