Jæja núna klukkan 00:43 var leik GZero og Necro að ljúka. Þessi leikur var ÆSI spennandi þar sem Gzero menn komu mjög sterkir til leiks og sýndu okkur að þeir hafa sannarlega vaxið sem dodspilarar á skömmum tíma. Leikurinn fer af minni hálfu í safn skemmtilegustu leikja sem ég hef spilað og gefa svona leikir tóninn afhverju maður er í þessu. Necro fór með sigur af hólmi með einungis 10 stigum og svei mér, ég held ég sofni ekki í nótt vegna adrenalíns í blóði og mikils hjartsláttar. Þökkum GZero fyrir frábærann leik og hlökkum til að mæta þeim í næsta rcl úrslitaleik. ÍSLAND A TOPPINN. <br><br>[Necro]Baazuuka
Og þannig er nú það..