Jæja kæru samspilarar nær og fjær ..

Jæja ekkert hefur verið um að vera hérna á huga nema bitch útaf öllu. Það má ekki hreyfa sig þá er það bitch.

Hvernig væri nú að sameinast allir í að gera þennan leik enn betri og hann er og hætta öllu bitchi og reyna að þola hvern annan.

Ef það er eitthvað diss eða beef, ekki senda það hingað, please talið um það í private.

Margir góðir og virtir CS spilarar eru bara einfaldlega að gefast upp á þessari ágætis íþrótt okkar og áhugamáli, þeim finnst einfaldlega bara komið nóg af dónaskap sem þekktist ekki hérna áður fyrr nema hjá n00bunum.

Eins og þið allir vitið þá getur þessi frábæri leikur verið ein mesta skemmtun, ef allir sameinast um það að hafa gaman og hætta að bögga aðra. Ég segi nú ekki að þetta bréf frá herra Rooster hafi verið diss, en hann var bara að benda á það sem honum fannst mætti betur fara.
Kannski var þetta of harkalega til orði komist hjá honum, en hver gerir sín mistök. Ég held að prýðist GGRNarinn Rooster hafi ekki ætlað að særa sálir Nebbana enda fínn hópur hjá NeF.

En annað er mál með vexti með þetta diss á milli GGRN og NeF eins og NeF vilja kalla það, ég persónulega veit ekki nógu mikið um þetta til að dæma þetta, en á heimasíðu GGRN manna, GGRN.org þá er dálítið mikið verið að tala illa um prýðisklanið NeF. Og vonandi má ég copya þetta hingað sem ég tek héðan af GGRN.org;
"Óvinir [GGRN]

Þessa viku:

[-=New elite Forces=-]

Því þeir eru alltaf að tæla til sín reikula leikmenn annarra klana í einhverskonar klanhóru-ruslahaug. Svo sviku þeir vini okkar í Drake og með lúalegum aðferðum rústuðu þessum dreifbýlis-demanti af klani.“ tekið af GGRN.org undir ”óvinir“

Eins og ég segi, þá veit ég ekki nógu mikið um þetta mál til að mynda mér skoðun á þessu. En mér finnst bara að þessi clön eigi að tala saman sín á milli í private og leysa þetta óskemmtilega mál og reyna að gera CS heiminn enn betri en hann er í dag.

Kannski var þessi NeF gaur á server að hóta kicki og svona, ef svo er þá er það NeFs vandamál og þeir leysa þetta sín á milli. Vegna þess að NeF hafa örugglega lent í svona málum og geta svo hæglega leyst þetta.

Svo er það annað mál hérna á hugi.is/hl ..

Xero sendi hérna inn prýðis grein þar sem margt sem hann sagði var rétt. Kannski vandaði hann ekkert sérlega mikið málfarið sitt, en hann reyndi þó, en allaveganna sem skipti mestu máli, hann kom skoðunum sínum á framfæri. En þá skrifaði undir gaur, sem kallar sig ”NaKaTa" .. og talaði Xero á kaf hvað eftir annað. Mér fannst margt í þessari grein hjá Xero alveg hárrétt, en hann hefði mátt bæta málfarið.

Annað er mál með vexti ..

Tökum okkur saman núna, gerum leikinn enn betri en hann er, sameinumst um það og hættum öllu dissi út í hvern annan, meina öll erum við ólík og lifum með því. Clönin eru ólík eins og þau eru mörg.

Með kærri kveðju,
Fixe