Jæja hvar á að byrja. Ég sá póst frá Elsu á huga um að við ættum bara að játa. Ég hef bara aldrei neitað þessu, ég hefði getað gert það því það voru engar sannanir að ég td hefði spilað þennan leik, en ég játaði því ég hélt að þetta væri allt löglegt. Svo þegar ég áttaði mig á að við hefðum átt að skrá okkur af MurK listanum áður, bað ég ICSN afsökunar og sagðist sætta mig við refsingu frá ICSN, ég jafnvel bauð Zlave upp á að banna okkur frá Þursadeildinni sem er að byrja og hann tók vel í það, en hann var búinn að segja að ekkert yrði líklega gert þar.
Ég sé mikið eftir þessu og ég sé núna að þetta var illa gert siðferðislega, en ég verð jafnframt mjög reiður þegar meðlimir Love skíta út alla í MurK, aftur og aftur og jafnvel á erlendum síðum. Þeir afsaka sig með að ég var höfuð klansins og að hinir hafi tapað viljandi gegn NeF. Að ég hafi verið höfuð cs hlutans er ef til vill rétt en þótt ég hafi jafnvel hætt í MurK þá eru þeir enn að pósta um þetta í þeirri von um að fá meiri óróa í klanið þótt eftir standa saklausir spilarar. Afhverju?
Með leikinn gegn NeF, með fullri virðingu fyrir leikmennina sem spiluðu fyrir okkar hönd þá voru þeir einfaldlega ekki okkar bestu, sigur hefði ekki fært neitt til klansins nema auðvitað ef evil hefði tekið Love og MurK tekið NeF þá hefði jafnvel MurK unnið. Það hefði verið einfaldari leið því MurK var með mun fleiri rounds í plús. Staðreyndin er sú að sá leikur skipti engu máli og var einfaldlega ffa hjá MurK, en það er enginn glæpur að hafa ekki metnað í síðasta leikinn. Að margir innan MurK hafi vitað um þetta fyrir leikinn er ekki rétt, en eftir leikinn sagði ég öllum í MurK að ég hefði spilað, ég neitaði þessu aldrei.
Ég tek fulla ábyrgð á þessu öllu, ég hef verið með óflekkað nafn fram að þessu en þetta hefði ég ekki átt að gera og bið ég enn og aftur ICSN afsökunar á þessu og hin klönin sem höfðu ánægju af þeirri deild. Ég mun hinsvega ekki biðja Love afsökunar nema vissir aðilar inna klansins geri það sama við þá sem eftir eru í MurK og hætti að reyna ryðja besta cs klani landsins úr vegi með að æsa upp málið þótt því sé lokið með refsingu á þeim sem frömdu þessi brot.

p.s. ICSN var á sínu síðasta tímabili og vissu margir það nokkrum vikum fyrir síðustu umferðina, þetta mál hafði ekkert með það að gera og ég skil ekki hví Inferis nefnir það á ICSN síðunni.

MrRed

sK
:)(
goose