Ágætu cs-prumphænsn!

Ég fylgist nokkuð reglulega með þeirri misgáfulegu umræðu sem hér fer fram og styð heilshugar þær hugmyndir að gera sérstakan tækni-hjálparkork. Hins vegar má helga þann kork sem nú snýr að cs svona heimspekilegri-, félagsfræðilegri-, menningarlegri- og djúpsálarfræðilegri umræðu um cs-menninguna almennt með áherslu á pólitísku hliðina. Ekki verður betur séð en cs sé orðið þrælpólitískt fyrirbæri sem einkennist af valdabaráttu og plottum að ítölskum sið. Til að leggja í púkkið og ýta undir umræðu af því tagi sem hér er kallað eftir vil ég setja fram nokkrar spurningar og vona að menn komi með rökstuddar kenningar og svör. Bæði er að okkur á [GGRN]Fréttum skortir upplýsingar upp að ákveðnu marki og svo er alltaf gaman að bollaleggingum.

1. Alltaf þegar klön leggja upp laupana þá eru menn með grátstafinn í kverkunum og skrifa með ekkasogum: gg, takk fyrir samstarfið, gj, omg o.s.frv. Því spyr ég: Eru cs-arar þegar allt kemur til alls viðkvæm og íhaldssöm blóm?

2. Hvað verður um Preacher?

3. Ætla menn að spila cs á jóladag og hugsanlega vanvirða þannig hina heilögu ritningu og allt sem Jesúbarnið stendur fyrir?

4. Hvernig stendur á því að þeir sem leggja mest uppúr skrautlegum og löngum signeratúrum (og virðast duglegastir að pósta) hafa yfirleitt minnst til málanna að leggja?

5. Af hverju einkennast tjáskipti innan cs heimsins af kjánalegum skammstöfunum sem vísa til enskra orða - ég nefni t.d. gg eða good game, gj eða good job, omg eða oh my god og stfu sem þýðir víst shut the fuck up o.s.frv. Á þetta sér einhverjar menningarlegar forsendur sem mér eru ókunnar?

6. Hvernig tengjast bækurnar Artemis Fowl og Kafteinn Ofurbrók cs á Íslandi?

7. Af hverju spila menn ekki undir klantögunum sínum og/eða altnikka vinstri hægri? Sérstaklega er þetta áberandi þegar Love, ccp| og Nef eiga í hlut. Þeir jafnvel altnikka í leikjum sem hlýtur að teljast stórfurðulegt og jaðra við dónaskap gagnvart kollegum sínum. Er þetta vegna þess að þeir vilja standa sig á ifrags? Eða er þetta vegna þess að þeir eru klofnir persónuleikar eða býr eitthvað annað þar að baki?

8. Hafa cs-arar almennt slæman tónlistarsmekk sbr. einkennislag hins nýja klans [.Luv.] en “What is love” með Haddaway er eitthvert versta lag tónlistarsögunnar og er þá langt til jafnað.

9. Hvað er að því að kampa? (T.d. í tröppunum á Italy sem terr.)

10. Hver myndi teljast guðfaðir cs á Íslandi?



Með bestu kveðju,

[GGRN]Rooste