Ég er nú búinn að sjá ýmislegt undanfarin ár en núna er ég gersamlega orðlaus. Annar eins dónaskapur og þursháttur er ótrúlegt að sé látið líðast í þessum CS heimi sem ég leit inní núna í kveld.

Ég dundaði mér við það að fara og ná í allar þær skrár sem þurfti til að geta spilað CS og mappakka og punkböster og leitaði ráða hjá vönum CS´ara um stillingar og þvílíkt. Þá var komið að stóru stundinni, fara í geimspæ og finna leikina…..ég fór inn á nokkra servera viti menn…ég spilaði eins og þetta væri í fyrsta skipti sem ég væri að spila CS, það þýddi bara það að á þremur af þremur serverum sem ég fór inná var mér sparkað út ÁÐUR en fyrsta ránið var búið, ekkert “hei fífl passaðu þig” eða “gættaðhvaðþúgerirþurs” heldur bara púff….sparkað beint út.

Ég vissi bara ekki að þeir sem spiluðu CS þyrftu að skila inn mannasiðunum en núna er ég margs vísari um “CS samfélagið” og er alveg sáttur við að eyða CS og öllu tilheyrandi út því ég hef ekki áhuga á að vera í samfélagi sem kann ekki grunn mannasiði.

Ég vona að einhverjir stoppi í smá stund og huxi um það hvert þetta “samfélag” er að fara og gefi sér orku í það að skoða hvað má betur fara.

Jon Gunnar
bofh

p.s. væri það illa gert af mér að loka á öll HL-CS portin á eldveggnum? ;o)

p.p.s. það kæmi mér ekki á óvart þó að þessi grein verði ekki samþykkt þar sem ég er að gagnrýna heilaga kú……