Okkur langar að kynna nýtt klan í CS menningunni á Íslandi. Þetta er klanið [.HaL.] sem er orðið til með samruna klananna [.Hate.] og [.Love.] Til að byrja með munu bæði klönin klára sínar deildir sem [.Hate.] og [.Love.] en um leið og ný tímabil byrja munum við spila sem [.HaL.] Við teljum að þessi sameining muni verða til að búa til sterka einingu sem verður með öllu “ósigrandi” hérlendis og vonandi líka á erlendum grundvelli.

Suma ykkar hefur áreiðanlega grunað að eitthvað væri í loftinu og hér hafiði staðfestingu á því, frá og með deginum í dag hafa liðin tvö sameinast.

Við viljum Þakka ykkur öllum fyrir góða leiki á liðnum árum og vonumst eftir skemmtilegri leikjum í framhaldi.

Við erum þó enn að leita af góðum leikmönnum þannig að ef þið teljið ykkur hafa eitthvað fram að færa endilega hafið samband við okkur í gegnum <a href="http://www.clanlove.com">Heimasíðuna</a>.

Signing off [.Love.]Froggy
Signing on [.HaL.]Froggy

Kv
[.HaL.]Froggy