Nú er ég búinn að spila CS í nokkurn tíma á netinu(áður á Lani). Það virðist ekki vera mikil hreyfing á þessum möppum á serverunum. Það er að vísu komnir FightClub serverar með öðrum möppum, en málið er bara það að það er einginn inni á þessum serverum. Ég hef gert margar tilraunir til þess að fara inn á þessa servera og verið þar einn og beðið eftir einhverjum öðrum, en það virðist bara vera málið að allir vilja spila þessi sömu borð. Auðvitað er Dust klassískt borð og allt það, en guð minn góður ekki 10 sinnum á dag í marga mánuði, það eru til skriljón möpp þarna úti og mörg af þeim eru komin á serverana. Afhverju vill fólk ekki breyta aðeins til?