Það er ótrúlegt hvað það er alltaf mikill dónaskapur og diss sem viðgengst í þessu svokallaða CS-samfélagi. Maður spilar valla inn á server án þess að menn séu að rífa sig niður í rasgat út af einhverjum smámunum, Það virðist vera lenska hjá sumum að kenna alltaf einhverjum öðrum um sín eigin mistök þegar þeir eru drepnir því jú sjálfir eru þeir svo góðir. Þá koma kveðjurnar í gusum svo sem : OMG nOOBBBBB , Drullastu frá hel****ð ,Mamma þín er hó*a, OMG Fu**k fífl marr og það annað verra. En spáið aðeins í því að við erum ALLIR NOOBBBBBAR bara mis mikið :) Því þeir eru nú mun færri sem hægt er að kalla PRO spilara. Allir geta gert mistök og það er óþarfi að koma svona framm við menn og dissa þá í tíma og ótíma sem að vísu sýnir meira á hvaða þroskastigi þeir eru staddir á sem eru alltaf að dissa. Það er kannski skiljanlegt að hluta þar sem stór hópur af spilurum hvorki virða náungann né sjálfan sig og kunna ekki neina mannasiði. Ég held að sumir ættu að einbeita sér meira af því að spila leikinn heldur en eiða öllu sínu púðri í diss og leiðindi….

Þetta hefur nú breist svolítið mikið þessi spilamennska og þegar menn spiluðu alltaf eða oftast undir sínum eigin nickum og stóðu og féllu með þeim mindaðist oft kunningskapur á milli manna en í dag eru spilarar sjaldan eða aldrei undir sínum réttu nöfnum. Ástæðan fyrir að margir hættu að nota sín réttu nick var að þeir fengu oft ekki frið inn á serverum sérstaklega ekki þeir sem voru mjög öflugir spilarar og menn byrjuðu að dissa og vera með leiðindi og oft fóru þá flestir yfir í það lið sem viðkomandi var í:(….


Smá í sambandi við þegar menn kvarta látlaust yfir þessu svo vinsæla CAMPI :) uujee , Þessi leikur er einfaldlega byggður upp þannig að CAMP er partur af þessum leik ( ekki þá að meina að menn hreifi sig ekki úr stað allt roundið)einfaldlega að menn lenda oft í þeirri aðstöðu að þurfa að CAMPA eilítð td. 1 á móti nokkrum og reyna að ná þeim 1 af 1 í rólegheitunum. En það eru svo margir sem eru óþolinmóðir með eindæmum að þeir geta ekki beðið smá stund eftir að menn klári heldur arga hver í kapp við annan CAMP CAMPARA DJÖFULL og þessháttar. Ég vil bara benda ykkur á að það eru nú bara fullt af leikjum sem þið getið spilað sem eru endalaust respawn og hraði og ef þið þolið ekki smá bið þá bara skella ykkur í þá…


Og svo bara svona smá í lokinn… Hvernig væri að reyna nú að stilla skap sitt og einbeita sé að spilun leiksinns heldur en vera endalaust að disssssa náungann.

PS. Nennti ekki að laga stafsettningarvillur.
Good Game have fun.