Ég ákvað að prófa eina aðferð til að vekja áhugamálið aðeins, koma því ofar á lista yfir flettingar og gera það skemmtilegra fyrir þá sem stunda það.

Sumir hafa kannski tekið eftir því að það er kominn nýr kubbur á áhugamálið sem heitir “Manneskja mánaðarins”. Var að vonast eftir því að fólk með áhuga myndi svara ákveðnum spurningalista sem ég er búinn að búa til, og væri frábært ef fólk myndi vilja bæta við sínum eigin spurningum. Svo tæki ég spurningarnar ásamt svörunum og set upp í kubbinn. Þið sem svarið spurningunum megið ráða hvort nafnið ykkar komi fram og hvort þið svarið öllum spurningunum.

PS: Ef einhver veit um betra nafn fyrir kubbinn þá endilega láta mig vita. Ef þið viljið sjá spurningalistann sendið mér bara hugaskilaboð.