Sælt veri fólkið =)

Ég lennti í smá veseni og langaði til þess að athuga hvort einhver hérna hefði mögulega lennt í einhverju svipuðu. (Er búin að tala við lækna og þeir geta ekki sagt mér neitt svo sakar ekki að reyna)

Þannig er mál með vexti að ég þurfti að fara á lyf sem heitir Primolut N og er við óreglulegum blæðingum, býst við að þar af leiðandi valdi þetta svolitlu ef ekki miklu hormónarugli í líkamanum.
Eftir að ég byrjaði á lyfjunum fékk ég alveg hrikalegt hárlos, ég hef alveg fengið hárlos áður en þetta er öðruvísi. Hárið mitt hefur þynnst ofboðslega mikið og þetta er orðið svo mikið hjá mér að ég er orðin hálf skelkuð. Ég er hætt að lyfjunum og er núna bara að taka mína venjulega getnaðarvarnar pillu svo ég veit ekki hvað ég á að halda. Er einhver með sniðugar leiðir til þess að losna við mjög slæmt hárlos? :)
Fuuu..