Ég sá eitt sinn sjónvarpsmarkaðinn og þetta undratól, abflex, ákvað að kaupa það því magavöðvarnir mínir voru svo slæmir. Eftir viku notkun fékk ég fína og stinna magavöðva, var mjög stoltur af þeim og gat loksins farið í sund. Þegar á hálfa aðra viknu var komið fannst mér þetta 2much svo ég tók pásu á því. Bara tvem dögum seinna byrja magavöðvarnir að síga og ég fæ slaka húð og fellingar framan á mér, mér bregður í brún og tek aftur að nota tækið til að halda mér við en tækið virðist ekkert gera nema auka þetta. Ég fer þá í líkamsrækt en það hefur engin áhrif. Ég reyndi prótín drykki með en ekkert gekk á magavöðvana, loks leitaði ég í stera en það tútna bara allir vöðvar út nema magavöðvarnir. Ég hef ekki þorað að segja neinum frá þessu augliti til auglitis en ég var að vonast að einhver gæti hjálpað mér hér. Veit einhver ráð???