Nú er ég heima í Rvík í páskafríi og var heppin að hafa fengið túrverki heima heldur en á Akureyri, því hér heima gleymdi ég hitateppinu sem ég get sett í samband. Ég vaknaði með KVÖÖÖL af túrverkjum í morgun, rétt náði að labba fram, en gat ekki staðið upprétt af verkjum og ná í teppið, ég dýrka teppið, það virkar betur en ALLAR verkjapillur!!!!
Síðast þegar ég fékk verki á Akureyri á gistiheimilinu, hafði ég ekkert hitateppi bara stórar verkjapillur sem ekki virkuðu, þá varð ég að liggja í sturtunni og láta flæða heitt vatn á magann, en það var ekki nógu gott því straumurinn frá kranahausnum meiddi mig :( tek teppið með mér eftir páska, EF ÉG MAN, týpískt að ég muni það ekki!