Sælir/sælar

Ég fékk mér dúnk af hreinu maltodextrin í vaxtarvörum en þetta er bara svo viðurstyggilega vont á bragðið ef maður blandar þessu beint í vatn þannig ég var að velta því fyrir mér hvort einhver af ykkur hafi eitthvað bragðbætunar trick uppi í erminni?

Planið er að taka þetta inn eftir æfingar til að hlaða upp glýkógen birgðirnar og auk þess taka kreatín með þessu þannig ég vill ekki blanda þessu í neina drykki með mikið sýrumagn eins og appelsínusafa o.s.fv.

Öll skítköst vel þegin en hunsuð.
…djók