ég hef verið að taka eftir fáránlegusupóstum hérna ..

ég er ekki stjórnandi, en er búinn að vera hérna þokkalega lengi

Fyrst, ef þú ert með spurningu hvernig á að gera t.d. magaæfingar, þá rosalega gott að nota Google , ef þú veist ekki hvernig það er skrifað á Ensku, þá notaru Translate.google.com

Spurningar um Anabolísk hormón (sterar) eiga ekki heima hérna - hvað þá önnur ólögleg efni.

Ef þú ert veikur, þá ferðu til læknis, hann bítur ekki. Sama hvað þú varst að gera, þá á læknir að hjálpa þér þó þú hafir óverdósað á eitthverju ólöglegu t.d. Það geta komið fáránlegustu svör hérna, og ég myndi ekki treysta á þau..

Láttu titilinn koma með góðri lýsingu á efninu,, ekki bara “hjálp” það er ekki að fara að virka, heldur myndi t.d. “ sp. með kjúkling ” koma með aðeins betri lýsingu um innihaldið.

svo bara tips til allra..

prófaðu að leita í gömlum korkum áður en þú póstar nýjum inn, pinu pirrandi að svara sömu spurningunum mjög oft..

Jæja. nú megið þið drulla eins mikið yfir þetta og ykkur lystir..