ég lennti í einhverju mjög furðulegu í gær, held að þetta sé ekkert alvarlegt þanig að ég vel ekki að fara til læknis nema þetta gerist aftur.
þannig er mál með vexti að ég var í sundi í gær, fór í pottinn og þegar ég kom uppúr honum varð allt svart fyrir augunum mínum (svona eins og gerist þegar maður stendur of hratt upp) en það er ekki málið, heldur í eitt skiptið þegar ég var að standa uppúr pottinum, þá varð allt svart og ég datt út í smástund, man ekki neitt í einhvern tímapunkt, ‘vaknaði’ upp við það þegar kærastinn minn var að stiðja við mig svo ég myndi ekki detta og fann að ég var með kippi útum allann líkama sem ég réð ekki við.
kærastinn minn sagði að ég hefði labbað fyrst eins og ég væri að detta afturfyrir mig, bognað síðan í bakinu og byrjað að skjálfa og fá þessa óútskýranlegu kippi. ég réð ekkert við þá, fann fyrir þeim, sá ekki neitt og gat ekkert gert.
veit ekki hvað þetta gat verið, veit ekki hvort það leið yfir mig eða ég hafi bara fengið krampa eða flogakast?, en ef þið eruð með tillögu megið þið endilega skjóta (nema ef þessi tillaga er skítkast.)