Ég er að leita að upplýsingum um hvað má og má ekki flytja inn og nota á þessu blessaða landi okkar. Basically þá er ég að fara í gegnum listann á bodybuilding.com og velta fyrir mér hvort ég ætti að prófa eitthvað nýtt, það eina sem ég hef notað hingað til er prótein og kreatín (og reyndar Hydroxycut, en hefði alveg eins getað fengið mér kaffibolla og sturtað 5000 kalli niður í klósettið :)

Nokkrar af þeim vörum og vöruflokkum sem ég er að velta fyrir mér:

No-Xplode (og aðrar svipaðar Nitric Oxide vörur)
Animal Cuts
testosterone boosters

Ef einhver vill ráðleggja mér með hvað ég á að taka eða segja mér að nota ekki svona efni, slepptu því. Ég er bara að rannsaka, reyna að finna eitthvað sem gæti hjálpað mér, og áður en ég get það þarf ég að vita hvort efnið er hugsanlega bannað. Nenni ekki að standa í veseni með tollinn og lögguna…

Ef þið getið svarað þessu fyrir mig þá verð ég að eylífu þakklátur ;)

Bætt við 10. september 2009 - 18:46
Gleymdi: Carb blockers, t.d. Cheaters Relief
Low Profile