Hæ.. ég á við eitt vandamál að stríða, en ykkur finnst það örugglega ekki vandamál. Málið er þannig að ég er rosalega grönn og borða og borða, en ég fitna ekki neitt. Ég er hætt að stunda íþróttir og líkamsrækt og alltaf er verið að tala um í sjónvarpinu: um offitu, og að þjóðin sé alltaf að kljást við hana og að flest börn hér á landi og annarsstaðar úti heiminum eigi við offfitu að stríða. En aldrei er talað um hvað á að gera ef maður vill FITNA. Ég veit að margir öfunda þá sem eru grannir en ég öfunda þá sem eru allavega með smá fitu á sér..
Getur einhver hjálpað mér að gefa mér ráð fyrir þetta.

K.v tecila2