Er með alltof stóra hálskirtla sem að þyrfti helst að fjarlægja sem fyrst, vandamálið er að ég bý á austurlandi þar sem enginn staður er til að fara í aðgerðina og nálægasti staðurinn er á akureyri. Það er alltaf talað um að maður komi á sjúkrahúsið snemma um morguninn svo er manni hleypt heim um kvöldið. Er það þannig líka ef ég fer til akureyrar í aðgerðina að ég fái að fara strax heim um kvöldið?