Ég byrjaði nýlega, fyrir kannski svona mánuði að fara í ræktina. Ég er 16 ára, 188 cm á hæð, og 90 kg. Var 85 áður en ég byrjaði :S
En allaveganna.
Ég er búinn að vera að fara ca 4 sinnum í viku, og þá tek ég þetta í þessari röð:

10 mín skokka
10 mín á hjóli ((á hæsta erfiðleikastigi) brennir um 300-370 cal.fer eftir því hversu duglegur ég er)
Svo hef ég venjulega farið í sömu tækin. Þau eru 4 samtals, ekki mikið ég veit, en þess vegna er ég hér, til að fá ráðleggingarnar. En þessi tæki æfa aðallega brjóstvöðva og svo bísepinn.
En svo enda ég í 250 magaæfingum (50 í einu)
Kannski ekki nóg af uppl. en þá segið þið mér frá því :)

Bætt við 9. október 2008 - 22:51
Greinilega eitthvað rugl í vigtinni hjá mér, en ég er 83 kg, ekki 90. Og ég þarf ekki lengur á svörum að halda en takk samt þeir sem svöruðu :D