Fólk er alltaf að tala um það hversu slæmt það sé fyrir heilsuna að reykja, og svo fer þetta sama fólk í mjólkurbað og sefur í ávöxtum og einhverju.

Ég skal bara segja einsog mér finnst, það er alveg ótrúlega asnalegt að ganga svona langt til þess eins að reyna að vera með einhverja góða heilsu, meina, til hvers er lífsins en ekki að njóta þess?

Ég nýt þess að fá mér smók, en ég kvelst ef ég er að reyna að hætta og fæ mér engann í langan tíma, hví ætti ég að vilja það?
Við fáum bara eitt líf!

Svo að nú kem ég með nýtt átak!

Borðaðu fitandi og GÓÐAN mat en slepptu megrunarduftinu, ef þú hefur meiri áhuga á að liggja inni og horfa á sápur en að fara niðrí gym að púla og erfiðast, GERÐU ÞAÐ!

Fátt eins heimskulegt og að pínast allt sitt líf til þess eins að lengja það eitthvað aðeins.

Kveðja
Atlas
<img src="