Svo er mál með vexti að ég réð mig í stjórnunarstarf nú í sumar, (er með 10 manns í vinnu), en málið er að ég þjáist líklegast af kvíða eða stressi meðan ég er ekki í vinnunni. Þetta er búið að vera dálítið erfitt núna undanfarið þar sem ég starfa í þjónustustörfum og ég er búinn að vera með nokkur einkenni ofsakvíða í verða 2 vikur núna samfleitt og taka þau sig upp alltaf þegar ég er kominn heim og ætti í raun að vera að slappa af.
Ég ætlaði að spyrja inn á doktor.is en komst svo að því að það kostar að vera þar í áskrift þannig að ég ákvað að athuga hvort einhver hér gæti deilt með mér reynslusögum og/eða beint mér í rétta átt til að leita mér aðstoðar ef þetta hættir ekki.

Ástæðan fyrir því að ég er að hafa áhyggjur af því að þetta sé ekki eðlilegur kvíði er sú að stærsta kvíðaefni mitt hefur í raun verið leyst en samt situr kvíðinn eftir og ég finn ekki fyrir þessum létti sem ætti í raun að koma.

p.s. ég er ekki alveg viss hvort að þetta er rétti staðurinn fyrir þennan kork en ef svo er ekki biðst ég fyrirfram forláts.
Suicide is man's way of telling God, “You can't fire me - I quit.”