Góðan Daginn,

Það vill svo til að ég fékk um helgina heil 6 flóabit og er alveg ferleg í þessu:(

Þetta bólgnar alveg upp hjá mér og verður smá ljóslitað í þessu, með eldrauðu í kringum, mer er virkilega illt ef það er ýtt rétt svo á bitin og svíður og klæjar líka … er þetta eðlilegt við flóabit eða þarf maður að fara kíkja til doksa??

og hver er besta leiðin til að losna við svona fyrst … a.m.k. kláðann… mig klæjar til dauða! og þetta er ekki beint á bestu stöðum… við öklann og svona … bara rosalega óþægilegt!


Ef þú veist um fín ráð endilega kondu með þau og þú munt fá fínar þakkir:)


öll skítköst og leiðinleg komment að SJÁLFSÖGÐU hundsuð:)


Takk æðislega fyrir mig fyirir fram! :)
~ Systematic, Sympathetic