Er það???? Ein af fáum held ég. En fæddistu þannig? Hvað tekurðu mikinn skammt af thyroxin Natrium? Hvað ferðu oft í blóðprufu?
Systir mín fæddist líka svona eins og ég. Ég er 3 árum eldri og finn mikið fyrir einkennum en hún er ekki svona viðkvæm.
Ég er aldrei í jafnvægi. Var hjá mjög góðum lækni frá barnæsku, en af því að hann er barnalæknir, þá þurftum við að hætta hjá honum- synd, því þetta er hans sérgrein. Man ekki betur en að ég hafi ekki fundið mikil einkenni hjá honum en er alveg að verða brjáluð á þessum umskiptum á skömmtunum. er aldrei aldrei í jafnvægi. Þoli ekki að taka 2 pillur, þá fæ ég hraðan hjartslátt,einbeitingarskort-það mikinn að það gæti liðið yfir mig þegar ég reyni að einbeita mér að einhverju. Ég fæ beinverki…síðast stöðuga beinverki í 3 daga, en læknirinn hélt að það væri útaf hugsanlegri blöðrubólgu (ég kvartaði vegna gruns um blöðrubólgu þennan sama dag), en aldrei er það tekið alvarlega þegar ég er viss um það það sé skammturinn ég ætti að þekkja einkennin best er það ekki.
Ertu alltaf í jafnvægi?
hvað tekurðu mikinn skammt?
gott að geta deilt þessu með einhverjum, en skil ekki afhverju ég get ekki lifað eðlilegu lífi með þetta- því það stendur að við eigum eðlilegt líf þrátt fyrir þennan sjúkdóm með reglulegum blóðprufum.