Ég hef reglulega verið að skokka og til að hafa þetta stutt þá fæ ég í langflestum tilfellum þennan hlaupasting eða hvað þetta nú er..

Ég hélt fyrst að þetta væri bara að koma því að ég væri að byrja.. en það er nú alveg um 3 ár síðan ég byrjaði að skokka af viti og fæ ég þennan sting ennþá.

Ég hef prófað að anda öðruvísi, anda rétt og bara name it.. labba dágóðan tíma áður en ég byrja að skokka, vinna mig upp.. en ég hef oftast þurft gjörsamlega að neyða mig áfram þegar ég er að skokka því að ég fæ þetta alltaf.

Ég hef líka passað matarræðið og allt þetta áður en ég skokka.. bara allt:S

Svo að já, any ideas um hvað málið er?

Kv. Tangarine

Bætt við 5. febrúar 2008 - 01:58
Hef líka pælt í því hvort þetta sé eitthvað annað en hlaupastingur:/ Þetta er allavega virkilega virkilega farið að ergja mig!