Ég veit að allir fá einstaka sinnum leið á að éta alltaf skyndibita í hádeginu svo mér langaði að benda ykkur á littlu sjoppuna hjá mömmu. Sjoppan heitir “Anna Frænka” og er staðsett í Síðumúla 17 hliðin á Íssport verðlauna gripa búðinni og Nesradíó sem flestir ættu að vita hvar er. Hún býður uppá heitan mat í hádeginu sem er matreiddur sama dag ekki upphitað sull og hún er lærður matráður. Maturinn kostar littlar 750kr með meðlæti og er mismunandi réttur á hverjum degi t.d. Purusteik með kartöflum,grænmeti og sósu. Lasagne, Steiktur Fiskur, Kjötbollur, Fiskibollur, Lambakjöts sneiðar, Pottréttir, Kjúklingur og margt fleira

Svo vil ég líka benda á að hægt er að hringja um morgunin og panta t.d. fyrir fyrirtæki nokkra skammta og sækja þá í hádeginu… lofa ykkur því að þetta er classa matur endilega kíkið á þetta hollur og góður matur

Anna Frænka
Síðumúla 17
S:553 8780

svo er náttúrulega alltaf hægt að fá hamborgara tilboð, kjúklinga borgara, kótilettur, samlokur með áleggi að eigin vali og margt fleira
Stjórnandi á