Ég var að velta því fyrir mér hvort að einhver hérna vissi eitthvað um beinverki.

Allavega, undanfarið hef ég verið að fá mikla beinverki, eða ég held að þetta séu beinverkir, fæ rosalegan verk á einhverjum stað sem gerir þann stað bara hálfónothæfan.
Fæ þetta oftast í úlnliðina, puttana eða einhversstaðar á hendinni. Hef samt líka fengið í fæturnar og upp sköflungana.

Ótrúlega óþægilegt, alveg fáranlega.

Veit einhver hvað þetta gæti verið? Eða mögulega hvað ég gæti gert í þessu? Dettur aðeins í hug kalkskortur en ég fæ nú oftast einhverja mjólkurafurð daglega þótt ég drekki ekki eintóma mjólk.

Með fyrirfram þökkum,
Kaea.
Deyr fé, deyja frændur,