Mig langaði að vita hver væri umsjónarmaður þessa áhugamáls? mér finnst ekki mikið gert fyrir þetta áhugamál miðað við allt þetta heilsuæði sem á að vera að herja á íslendinga þessa dagana. Það er ótrúlegt að ekki sé hægt að gera meira fyrir þessa síðu heldur en það sem hefur verið gert, sem er með fullri virðingu, lítið sem ekkert

Ég lýsi yfir áhuga mínum á að gerast einn af umsjónarmönnum á þessu áhugamáli ef það er einhver vilji fyrir því.

p.s ég verð reyndar ekki í miklu tölvusambandi frá 15 des til 7 jan en eftir það þá get ég tekið þátt í þessu ef einhver vill. Og þá væri hægt að taka þátt í öllum áramótaheitunum hjá hugurum um breyttan og betri lífstíl á nýju ári og með breyttri og bættri heilsusíðu á Huga.<br><br>Ekki bögga svínið
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.