Getiði mælt með einhverjum góðum stað til að sækja jógatíma?
Hefur einhver reynslu af Yoga Studio í Kópavoginum?

Mig langar að fara í jógatíma en er ekki alveg að fíla að vera á líkamsræktarstöðvunum þar sem maður fer beint úr tíma í búningsklefa fullan af konum talandi hver ofan í aðra, maður finnur ekki fötin sín því allir snagarnir eru troðfullir og það er liggur við biðröð í sturtuna.

Þess vegna langaði mig að vita hvort einhver hefur reynslu af þeim stöðum sem kenna bara jóga og rólegheit, en auðvitað má það fylgja með ef einhverjir aðrir staðir/kennarar eru súper.

Merci

<br><br>Elektra Katz
Elektra Katz