Ég rakst á þetta áðan… fannst þetta nokkuð sniðugt. Spurning um að prufa þetta. Allavega er ég sérfræðingur í að gleyma að taka pilluna… sérstaklega þegar ég var á pillu sem skipti máli að væri ALLTAF tekin á sama tíma (gullfiskurinn ég hætti á henni !!)

Tekið af <a href="http://www.p.molar.is">http://www.p.molar.is</a>

Hvað er þetta?
Pillu-áminningin er SMS skilaboð sem þér er sent einusinni á dag, á tíma sem þú velur sjálf. Í skilaboðinu er einhver texti sem á að duga til að minna þig á að taka getnaðarvarnarpilluna þína. Skilaboðin eru gjarnan einhver einkabrandari sem óvíst er að þér þyki neitt agalega sniðugur (ég skrifaði þetta upphaflega fyrir kærustuna), en vonandi duga þeir samt til að hressa upp á minnið.

Á umsóknareyðublaðinu gefst þér kostur á að segja áminningarkerfinu hvenær þú byrjar á blæðingum, til að SMS skilaboðin séu ekki að berast þegar þau eru óþörf. Þar er einnig hægt að afþakka áminningu sem búið er að panta.