Ég á við ákveðið vandamál að stríða. Þannig er mál með vexti að ég sef 7-8 tíma á næturnar, tek lýsi og fjölvítamín á hverjum morgni, borða hafragraut, grænmeti og ávexti á hverjum degi eenn.. á hverjum einasta degi verð ég það þreytt að ég get ekki haldið augunum opnum, oftar en einu sinni og oftar en fimm sinnum á dag lendi ég í þessu og ég sef amk. 2 tíma dag hvern.

Hvað haldiði að þetta sé og hvað get ég mögulega gert?