Komiði sæl öllsömul!

Nú fer að líða að sumri og kominn tími á að taka sig í gegn líkamlega. Hugsunin var að fá mér einhvern almennilegan einkaþjálfara sem lemur mann duglega áfram og veit nákvæmlega hvað hann er að gera. Hef farið í nokkra prufueinkatíma hjá misreyndum einkaþjálfurum og flestir voru áhugalausir, ekki beint hvetjandi og vissu bara mun minna um hvernig best væri að beita sér og fl eins og þau væru nýbúinn af einherju helgarnámskeiði í þessum málum.

En nóg um það. Endilega komið með einhvern góðan einkaþjálfara sem þið hafið reynslu af eða vitið eitthvað um (ekki benda bara á arnar grant eða eitthvað) takmörkin eru að bæta á mig nokkrum kílóum af vöðvamassa og auka þol.