Já hæ,
Jæja, ég var í ræktinni áðan og ég ætlaði bara í rólegheitum að fara á eitt af hlaupabrettunum og byrjaði að skokka, svo ætlaði ég að fara að hækka hraðanna og þá allt í einu fékk ég þennan svakalega rafstraum og sá svona bláann neysta, oj hvað þetta var vont og það slokknaði á hlaupabrettinu samstundis..

Jæja, ég varð bara skelkuð og ákvað að fara á hlaupabrettið við hliðiná og byrja að labba smá og svo sé ég að það er eitthver halli á brettinu og ætlaði að laga það en gat ekki, svo ég ákvað bara að fara á það þriðja:P

Svo byrja ég að skokka á því þriðja og ætla enn og aftur að reyna að auka hraðann og vá kemur þessi neysti ekki bara aftur og slokknaði á brettinu..

ég var bara orðin frekar smeyk við að fara á það 4. svo ég ákvað að hætta við brettin:P og fór bara að gera aðrar æfingar.

Langaði bara að deila þessu skemmtilega ævintýri með ykkur:P og ef þið vitið af hverju þetta stafar þá endilega deilið fróðleik ykkar með mér:)
(þó að ég viti nú af alveg hvernig rafmagn myndast og allt það en jæja:P)
og endilega verið með skítköst, mér er sama=)

kv. Blomastelpa