Töflurnar kosta Ca. Kr. 4500 og eru teknar 2 -3 á dag. Fyrir stórar máltíðir og svo klst. fyrir æfingu. þær eru 120 í hulstrinu

Töflurnar innihalda mikið koffín og gera mann virkilega upptjúnaðan og hressan. Maður finnur það eins og smellt sé með fingrum um leið og maður gleypir að öll svengd er horfinn, sama hversu svangur þú varst.

Varúð:
1. Mikið koffín innihald þeirra getur farið í magan á sumum. ég fokk oft sting í magan í fyrstu, eins og þegar maður er með tóman maga og magasýrur gera að manni verði illt í maganum.
Lausn: töflurnar eru hulstur sem hægt er að taka í sundur og setja út í vatn og vatnið dregur og oftast eyðir magaverk.

2. Ekki taka fleiri en 3 á dag, það mikið koffín er ekki hollt fyrir þig. Ef þú ert í minnikantinum þá skaltu ekki taka fleiri en 2

3. MIKILVÆGT: töflurnar gefa þér ákveðið búst, sem gerir þig hæpir og hamingjusaman. EKKI taka þessar töflur fyrir félagslegar athafnir, eða til að rífa þig uppúr vanlíðan.


Mín reynsla
Ég keypti þessar töflur í hagkaup, því það er hægt að setja þær í vatn, ég á erfitt með að gleypa töflur.

Ég tók þær reglulega og var að hjóla á fullu (oft 30 - 40 km á dag) á æfingarhjóli sem við kærastan keyptum saman og var bara að hlusta á tónlist og horfa á sjónvarpið, þannig að ég gleymdi méer oft alveg. Sérstaklega því ég gat líka hjólað og spilað á gítarinn á sama tíma.
Mæli með að allir hafi einhverskonar afþreyingu við brennsluæfingar. annars byrjar manni að leiðast og maður hættir.

Ég er 177 cm, og var komin upp í 85 kg. með þeim og reglulegri æfingu fór ég niður í 78.4 kg.

en hættti á þeim eftir að ég féll á atriði númer 4 og byrjaði að taka þær þegar ég þurfti að vera félagslegur og þegar ég vildi draga mig uppúr einhverji vanlíðan.

Ég tók smá pásu en er að byrja aftur til að fara niður í svona 75 kg áður en ég byrja að byggja upp massa.


Ég mæli hiklaust með þeim. Þvílíkur árangur með reglulegum brennsluæfingum, en farið eftir leiðbeiningunum og passið ykkur á hættunum sérstaklega nr. 3

Takk fyri