Ney heyrðu fyrst engin skrifar um heilsu þá ætla ég að skella hérna inn einhverju um heilsu. Vitiði að það er hægt að hafa heilsu fordrykki í afmælum eða partíum…auðvitað vissuð þið það en þið eruð kannski ekki með einhverja uppskrift. Þá er ég með hana……………..

1 lítri vatn 1/2 msk ferskjute
1 msk. aloa djús
1 askja jarðarber
½. stk lime
10 blá vínber og eða bláber
Klakar


Skerið ávextina niður í litla bita og blandið öllu í könnu.

Berið fram í kampavínsglösum með miklum klaka.

Þessi drykkur er tilvalinn fordrykkur í allar mögulegar veislur þar sem þið viljið að gestir ykkar séu hressir og orkumiklir.

Ég mæli með fólki að prufa þetta…þetta gæti virkað!!