Bara að pæla, þó að þessi mynd sé mjög góð og allt þannig, hvernig væri að setja inn einhverjar af myndunum sem að notendurnir hafa verið að senda?

Þið getið sett þessa mynd sem svona ‘banner’ sem að gæti verið efst á áhugamálinu, þó að þurfi ekki.

Fólk vill fá að senda myndir, og reyna að sýna öðrum notendum eitthvað sérstakt í gegnum þær, eða bara til að breyta til.

Og annað, væri ekki hægt að taka svör úr þráðum hérna, eins og t.d þegar að byrjendur spurja um æfingarprógram, mataræði og þess háttar, og vista svörin efst á forsíðu /Heilsa ?