Ekki alveg Glinglo. Maðurinn er meðal svokallaðra “alæta”, sem þýðir að við RÁÐUM VIÐ að borða flestar fæðutegundir. En meltingarfæri okkar, tennur og útlimir eru mun líkari ávaxta og fræætum. Ef við værum “gerð til að borða kjöt” værum við með 3X styttri þarma, hvassari tennur + vígtennur (til að slíta/skera) og 3-6X sterkari magasýrur og að öllum líkindum líka klær (en ekki neglur).
Þótt við ráðum við að borða kjöt, þá er það ekki það besta sem við setjum ofaní okkur. T.d. vilja sumir meina að það sé slæmt fyrir m.a. ristil/endaþarm/maga/blóðþrýsting.
Ég var alveg strict jurtaæta í 5 ár og varð alls ekkert meint af, ef eitthvað var þá hafði ég gott af því. Og ég vil líka árétta að B12-, prótín- og járn-goðsagnirnar eru hreinasta bull og vitleysa. Sérstaklega þar sem jurtaætur eru sumar á nokkuð heilnæmara fæði en meðal-kjötætan, því þær þurfa að hafa meira fyrir matnum (engar pizzur, pylsur, hamborgarar o.s.frv.) og spekúlera meira í honum. En það er auðvitað ekki algilt frekar en annað.
Þú gætir vel prófað að taka þér pásu í nokkrar vikur og það væri góð hugmynd að borða rautt kjöt ekki oftar en 1-2svar í viku (þess utan fisk eða grænmeti). En passaðu þig á því, að ef þú borðar ekki kjöt í nokkrar vikur/mánuði, þá verðurðu að fara ofboðslega varlega í að byrja aftur, því líkur eru á að líkaminn taki því ekkert sérlega vel til að byrja með (önnur rök gegn mikilli kjötneyslu). Borða þá mjög lítið kjöt í máltíð til að byrja með og alls ekki reykt eða saltað kjöt.
En ég er ofboðslega hrifin af fiski og elska fisk…hann fer svakalega vel í mig og var aðalástæðan fyrir því að ég hætti að vera grænmetisæta :) Mér finnst fiskur svo góður og einn daginn langaði mig í soðna ýsu….so long veganism… lol
Kv. L.