Alveg fer þetta í taugarnar á mér að þegar mér leiðist, þá ranka ég við mér að ég sé étandi.

Alltaf, þegar mér leiðist, þá fer ég að éta og mér leiðist svolítið oft þar sem ég er föst á stað útá landi (Akureyri.. en jæja) Og allir vinirnir í bænum.

Ég ét og ét og ét.. Því mér leiðist, er aldrei svöng en auðvitað fitna ég og fitna!

Verð að finna mér eitthvað betra til að gera.. jesús, þetta er ekki gott tómstundargaman!