Þú ættir að ræða þetta við heimilislækninn þinn. Annars sá ég mynd á Discovery eða einhvers staðar þar sem maður var að fara í fitusog til að láta taka af sér ístruna og brjóstin. Hann var í einhverju magabelti á eftir meðan hann var að jafna sig og hann sagði að það hefði komið sér á óvart hvað þetta var sárt. Hann var aumur alls staðar á eftir og tók alla vega mánuð eða meira að jafna sig. Hann var samt ánægður með árangurinn.
Það var fylgst með fleira fólki í þessum þætti sem var að fara í lýtaaðgerðir, alla vega ein kona í andlitslyftingu og ein í brjóstastækkun og þær sögðu báðar þetta sama og maðurinn, þær höfðu alls ekki búist við að þetta væri svona sárt og maður væri svona lengi að jafna sig en samt mjög ánægðar með árangurinn nokkrum mánuðum seinna.