* Ef þú borðar eitthvað og enginn sér það, hefur það engar hitaeiningar.

* Ef þú drekkur “diet” gos með súkkulaði, núllast kaloríurnar burt.

* Ef þú ert að borða með öðrum, teljast eingöngu þær hitaeiningar sem þú borðar umfram hina.

* Matur sem er góður fyrir heilsuna telst ekki með s.s. ristað brauð með kakó, brandý, rauðvín og ostakökur (allt þetta er notað til lækninga (á lystarleysi)).

* Ef þú borðar kökur eða kex, skaltu brjóta eða skera þær, þá leka
hitaeiningarnar út.

* Það sem þú sleikir af eldhúsáhöldum og óhreinum diskum telst ekki með.

* Hitaeiningar eru í lit matarins, borðaðu grænt. Það er ekki þér að kenna að marsipan er oft litað grænt og ath. brúnt er blandaður litur, ekki náttúrulitur svo allt brúnt telst ekki með s.s. súkkulaði, nema það sé hvítt.

* Það sem þú borðar í bíó telst hluti af skemmtanapakkanum og telst því ekki með s.s. popp og kók ( í anda tilgangshyggjunnar).

* Ef þú umgengst feitt fólk virðist þú vera grannur, spurning hvort þú sért ekki í röngum félagsskap ef þú ert “feitur”.

* Ef þú fylgir þessum reglum hættir þú að vera leiðinlegur (vegna þess að þú ert alltaf svangur ) og eignast fullt af vinum.