Jæja þá er komið að því….
Ég ættla heim um áramótin og þá ættla ég sko að verða orðin mjó, þannig að ég er sko byrjuð í átaki. Maður vill nú getað borðað jólasteikina án þess að fá samviskubit :P

Allaveganna, ég er alveg rosalega dugleg að hreyfa mig, ég labba ca 4-8 km á dag, svo geri ég fullt af magaæfingum og armbeigum.
Svo á morgun er ég að fara að kaupa mér líkamsræktarkort og þá ættla ég að reyna að fara 1x til 2 á dag þangað.

Svo er komið að matar-ræðinu, það er sko bara leiðinlegt, þar sem að fjölskyldan mín er mikið í nammiátinu, alltaf til nammi inni í skáp…..
En ég borða mikið af ávöxtum sker þá niður og borða þá á kvöldin, ég er að reyna að hætta öllu brauði en það gengur svona með erfiðleikum.

Ég borða nammi bara á laugardögum, þá kaupum við snakk og ís og vesen :) það er sko gaman.+

Þið ættuð að prufa :)