Síðastliðna nótt þá átti ég nokkuð erfitt með að anda. Það var eins og ég náði ekki nógu miklu súrefni og stundum kom svona eins og auka hjartsláttur inná milli. Þetta var mjög óþægilegt og ég er að vonast til að einhver hér viti hvað þetta er ef þetta er eitthvað merkilegt sem ég reyndar býst ekki við að þetta sé. Síðan eitt í viðbót. Stundum þá fæ ég þennan rosalega magaverk! Mér líður alveg eins og að maginn sé að springa og svimar alveg rosalega þangað til að það líður yfir mig. Síðan þegar ég vakna þá er mér enþá rosalega illt í maganum og rétt næ að staulast uppí rúm að reyna að sofa þetta af mér. Ég var líka að vonast til að einhver viti hvað þetta er.