Ég veit ekki hvar ég á að troða þessu svo ég geri það bara hérna.

Málið er að ég verð að fara að hreyfa mig af einhverju viti og í dag þá ÆTLA ég að fara í sund og synda alla vegana 750 m. Ég má ekki koma með afsakanir fyrir því að fara ekki. Ég ÆTLA að byrja á því að synda svona 3var til 4 sinnum í viku og standa við það.

En hvað það var gott að koma þessu út úr sér og núna þarf ég bara að standa við þetta því ég er rosalegt letidýr :(

Látið mig svo standa við þetta :o)